Leikskólanum Lundarseli-Pálmholti hefur borist einstaklega vegleg bókagjöf frá Hrefnu Hjálmarsdóttur leikskólakennara til minningar um son hennar Ásgeir H Ingólfsson.
Ásgeir lést í byrjun árs 2025 aðeins 48 ára að aldri. Hann var ljóðskáld og blaðamaður, fæddur og uppalinn á Akureyri, og átti góða daga á Lundarseli í æsku sinni. Gjöfin er gjafakort frá Pennanum-Eymundssyni sem ætlað er til kaupa á völdum barnabókum fyrir leikskólann.
Ásgeir var í hópi fyrstu barnanna í Lundarseli
Með gjöfinni fylgdi fallegt bréf þar sem Hrefna rifjar upp fyrstu ár Lundarsels og þann tíma sem sonur hennar gekk þar í leikskóla. Í bréfinu segir hún meðal annars frá því að það hafi verið síðsumars 1979 þegar Lundarsel tók til starfa og að opnun leikskólans hafi verið mikið fagnaðarefni fyrir ungar fjölskyldur í hverfinu. Ásgeir, sem þá á þriðja ári, var í hópi fyrstu barnanna sem hófu leikskólagöngu sína í Lundarseli.
„Ásgeir var afskaplega ánægður í leikskólanum og fór þangað ævinlega glaður í bragði,“ skrifar Hrefna í bréfi sínu. Hún rifjar einnig upp kynni við starfsfólkið sem starfaði við leikskólann á þessum fyrstu árum og nefnir meðal annars Erlu Böðvarsdóttur fóstru, Ragnheiði Ólafsdóttur fóstru, Svölu Tómasdóttur, Auði Magnúsdóttur og Selmu Jónsdóttur. Ásgeir var aðeins tvö ár í leikskólanum vegna reglna sem þá voru í gildi en Hrefna segir að hann hafi saknað leikskólans mikið þegar hann hætti þar.
Áhugi á sögum og bókum fylgdi honum alla tíð
„Hann hafði alltaf mikinn áhuga á sögum og ævintýrum og seinna meir lærði hann bókmenntafræði og skapandi skrif,“ segir í bréfinu. Á fullorðinsárum starfaði Ásgeir meðal annars við kennslu og sem menningarblaðamaður. Hann lést úr krabbameini í janúar árið 2025.
Hrefna segir að þegar hún hafi nýlega átt erindi í Lundarsel þá hafi minningar um þessi góðu ár í lífi Ásgeirs vaknað á ný.
Um þessar mundir standa aðstandendur hans og vinir að útgáfu ljóðabókar með ljóðum sem hann skildi eftir í handriti. Bókin kemur út í tilefni þess að Ásgeir hefði orðið fimmtugur í dag, 20. ágúst 2026.
Í minningu Ásgeirs og þeirra góðu ára sem hann átti í Lundarseli ákvað Hrefna að færa leikskólanum veglegt gjafakort til að kaupa nýjar barnabækur fyrir leikskólabörnin.
Gjöfin snertir hjörtu allra í leikskólanum og minnir á mikilvægi bóka, sagna og lestrar í lífi barna. Það er fallegt að sjá hvernig kærleikur Hrefnu til barns og góðar minningar frá leikskólaárunum geta orðið til þess að gleðja komandi kynslóðir barna.
Sem þakklætisvott sendu börn og starfsfólk Lundarsels-Pálmholts Hrefnu þakkarbréf skreytt fallegri teikningu eftir þriggja ára barn.
Í bréfinu stendur:
„Kæra Hrefna.
Við í leikskólanum viljum færa þér okkar innilegustu þakkir fyrir dásamlega gjöf til leikskólans okkar.
Það snerti okkur öll djúpt að finna þann hlýhug sem þú sýnir leikskólanum þar sem Ásgeir sonur þinn var sem barn.
Að heiðra minningu hans á þennan hátt á 50 ára fæðingardegi hans er einstaklega fallegt.
Með virðingu og kærleika,
Starfsfólk og börn í leikskólanum Lundarseli-Pálmholti.“
Hrefnu er þakkað innilega fyrir þessa rausnarlegu gjöf og þann hlýhug sem hún sýnir leikskólanum og leikskólastarfi.
Nýju bækurnar munu án efa veita leikskólabörnunum gleði, fróðleik og ævintýri um ókomin ár, í anda þess bókaáhuga sem Ásgeir bar með sér.
Það er vefur Akureyrarbæjar sem fyrst segir frá.