Upp á líf og dauða hjá Sigmundi og Höskuldi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins. Mynd: skjáskot af RÚV.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins. Mynd: skjáskot af RÚV.

Birgir Guðmundsson, dósent í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, ræddi við Morgunvaktina á Rás eitt í morgun. Þar sagði hann að kjördæmisþing Framsóknarflokksins, aðra þarnæstu helgi, geti reynst ögurstund fyrir bæði Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann flokksins og Höskuld Þórhallsson þingmann.

Um helgina fer fram miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins í Hofi á Akureyri. Þar ræðir Sigmundur Davíð við flokksmenn og tekin verður ákvörðun um flokksþing. Helgina á eftir fer fram kjördæmisþing þar sem kosið verður á lista flokksins í Norðaustur-kjördæmi, þar sem Sigmundur Davíð er efsti maður og vill vera áfram. Þrír aðrir þingmenn hafa gefið kost á sér gegn honum; Höskuldur Þórhallsson, Líneik Arna Sævarsdóttir og Þórunn Egilsdóttir. 

Samkvæmt Birgi gæti mikil spenna orðið í atkvæðagreiðslunni í ljósi þess að kosið verður í hvert sæti fyrir sig. Fyrst um fyrsta sæti og svo koll af kolli. Ef Sigmundur Davíð nær ekki meirihluta atkvæða þarf að kjósa á milli tveggja efstu.

„Í þessum kosningum á kjördæmisþinginu að þá held ég að þetta sé eiginlega „live or let die“ fyrir bæði Höskuld og Sigmund Davíð. Því að ef Sigmundur Davíð nær ekki fyrsta sætinu hér í kjördæminu þá er hann eiginlega bara úr leik. Það er mitt mat. Hann getur þá ekki farið inn á flokksþingið ef hann fær ekki umboð úr kjördæminu og farið í formannsslaginn. Það þykir mér mjög líklegt að hann myndi ekki reyna það einu sinni. En það yrði allavega mjög skrýtin staða,“ segir Birgir en hann vill meina að staða Höskuldar sé ekki síður snúin:

 „Ef Höskuldur tapar þessu og kemst ekki í fyrsta sætið, þá myndi ég halda það að það væri líka endir á hans ferli allavega í þessum kosningum, því það er erfitt fyrir Höskuld að fara fram í öðru sæti hjá Sigmundi Davíð og vera með honum í kosningabaráttu; manni sem hann hefur lýst yfir að enginn treysti og hann treystir ekki og hefur verið að gagnrýna, meira að segja opinberlega í blaðagreinum.“

 

Nýjast