Unnið að stofnun ungmennaráðs á Akureyri

Á fundi samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrar í vikunni var haldið áfram fyrri umræðum og rætt um stofnun undirbúningshóps sem falið verður að gera tillögur að stofnun ungmennaráðs, skilgreina hlutverk þess og samsetningu.  

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkti að fela forstöðumanni forvarna- og æskulýðsmála að auglýsa eftir áhugasömum ungmennum, 4 stúlkum og 4 drengjum, til að starfa í undirbúningshópnum. María H. Marinósdóttir verður fulltrúi ráðsins í hópnum.

Nýjast