Lögreglan á Akureyri stöðvaði tvo ökumenn í gærkvöld grunaða um fíkniefnaakstur. Þann fyrri stöðvuðu þeir um
áttaleytið og þann seinni tæplega klukkustund síðar. Mennirnir, sem eru báðir á þrítugsaldri, voru teknir úr umferð og
færðir til yfirheyrslu. Þá voru einnig tveir aðilar teknir fyrir sömu sakir í fyrrakvöld á Akureyri.