Á blaðamannafundi í Könnunarsögusafninu á Húsavík í morgun þann 11.11 , kynnti safnstjórinn Örlygur Hnefill Örlygsson, ýmsa viðburði sem eru í gangi og í bígerð hjá þessu sívaxandi safni en hróður þess hefur borist víða um heim.
Þarna var upplýst um þá sem fengu “The Leif Erikson Exploration Awards 2015”, sem safnið afhenti í fyrsta sinn en verður árviss atburður.
Stór alþjóðleg könnunarhátíð, Húsavík Explorers Festival, fer fram í september 2016 og samanstendur af fyrirlestrum, kvikmyndasýningum, listsýningum og tónleikum, en þema hátíðarinnar er könnun í sinni víðustu mynd. Heimsþekktir landkönnuðir og geimfarar verða meðal gesta auk þjóðþekktra listamanna.
Og síðast en ekki síst var upplýst að sumarið 2019, þegar 50 ár verða liðin frá fyrstu tungllendingunni, mun opna ný viðbygging við safnið sem meðal annars mun hýsa eftirlíkingu af tunglferju í fullri stærð, en slíkar eftirlíkingar eru til sýnis í nokkrum söfnum í Bandaríkjunum og í einu safni í Bretlandi og draga að fjölda gesta. Er þetta verkefni unnið í samstarfi við geimfara sem flogið hafa tunglferjum meðan Apollo verkefnið var í gangi. Bygging tunglferjunnar hefst á næsta ári á Íslandi.
Nánar verður fjallað um málið í Skarpi á morgun, fimmtudag.