Auk þess verður stofnað til skógræktar í heimalandi Hrauns í Öxnadal á þeim hluta jarðarinnar sem er utan fólkvangsins, Jónasarvangs, sem opnaður var 2007. Verður þess sérstaklega gætt að allur trjágróður lagi sig að landinu. Stefnt er að því að á Hrauni í Öxnadal vaxi upp sem flestar trjátegundir og runnar sem þrifist geta á svæðinu. Tré og runnar verða merkt til þess að gestir og gangandi geti fræðst um trjágóður á Íslandi. Einnig verður skólahópum og öðrum, sem þess óska, gefinn kostur á kynningu og leiðsögn um svæðið.