Björn Snæbjörnsson.
Nýir kjarasamningar Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins hafa verið undirritaðir. Næsta verkefni er að kynna samningana áður en félagsmenn greiða atkvæði um þá. Félagsmenn sem starfa eftir samningunum á almenna markaðnum taka þátt í atkvæðagreiðslunni.
Ekki er búið að semja fyrir þá félagsmenn sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum.
Aðgerðir sem ríkisstjórnin kom með að borðinu í Karphúsinu var lykillinn að því að hægt var að ljúka við samningana.
Að mínu viti eru þetta nokkuð góðir og skynsamlegir samningar, þar sem sérstök áhersla er lögð á að bæta hag ungs fólks og tekjulágra. Sömuleiðis er samið um fastar krónutöluhækkanir, sem er hagstæðast fyrir tekjulága.
Fleiri baráttumál verkalýðshreyfingarinnar mætti nefna, svo sem styttingu vinnuvikunnar, vaxtalækkun, aðgerðir í húsnæðismálum, lágtekjuþrep í skattkerfinu, lengingu fæðingarorlofs og aðgerðir til að afnema verðtryggingu.
Helstu atriði kjarasamningsins
- Kjarasamningurinn gildir frá 1. apríl 2019 - 1. nóvember 2022
- 17 þúsund kr. hækkun á öll mánaðarlaun 1. apríl 2019
- Lægstu laun hækka mest, hækkunin er um 30% á samningstímanum.
- Aukið vinnustaðalýðræði með möguleika á verulegri styttingu vinnutímans (mestu vinnutímabreytingar í tæpa hálfa öld)
- 26 þúsund króna eingreiðsla sem kemur til útborgunar í byrjun maí 2019
- Skilyrði sköpuð fyrir verulegri vaxtalækkun á samningstímanum
- Skattbyrði hinna tekjulægstu lækkar um 10 þúsund kr. á mánuði
- Almenn hækkun á mánaðarlaun fyrir fullt starf:
1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
1. apríl 2020 18.000 kr.
1. janúar 2021 15.750 kr.
1. janúar 2022 17.250 kr.
- Kauptaxtar hækka sérstaklega:
1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
1. apríl 2020 24.000 kr.
1. janúar 2021 24.000 kr.
1. janúar 2022 25.000 kr.
- Kjaratengdir liðir kjarasamninga hækka um 2,5% á sömu dagsetningum, nema um annað hafi verið samið.
- Á árunum 2020-2023 komi til framkvæmda launaauki að gefinni ákveðinni þróun á vergri landsframleiðslu á hvern íbúa.
- Lágmarkstekjur fyrir fullt starf:
1. apríl 2019 317.000 krónur í mánaðarlaun
1. apríl 2020 335.000 kr.
1. janúar 2021 351.000 kr.
1. janúar 2022 368.000 kr.
- Desemberuppbót (var 89.000 kr. 2018):
2019 92.000 kr.
2020 94.000 kr.
2021 96.000 kr.
2022 98.000 kr.
- Orlofsuppbót fyrir hvert orlofsár (var 48.000 kr. 2018):
1. maí 2019 50.000 kr.
1. maí 2020 51.000 kr.
1. maí 2021 52.000 kr.
1. maí 2022 53.000 kr.
Forsendur kjarasamninganna
- Kaupmáttur launa hafi aukist á samningstímabilinu skv. launavísitölu Hagstofu Íslands.
- Vextir lækki verulega fram að endurskoðun samninganna í september 2020 og haldist lágir út samningstímann.
- Stjórnvöld standi við gefin fyrirheit skv. yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninganna.
Helstu atriði í innleggi ríkisstjórnarinnar:
- Nýtt lágtekjuþrep í þriggja þrepa skattkerfi. Ráðstöfunartekjur tekjulægsta hópsins aukast um 10.000 kr/mánuði.
- Húsnæðismál: 2 milljarðar í viðbót í stofnframlög 2020-2022 ca. 1.800 íbúðir, unnið verður með aðilum vinnumarkaðarins að leiðum til að auðvelda ungu fólki fyrstu kaup og núverandi heimild til nýtingar á séreignasparnaði verður framlengd.
- Lífeyrismál: lögfest verður heimild til að ráðstafa 3,5% í tilgreinda séreign, sem heimilt verður að ráðstafa til húsnæðismála með tíma- og fjárhæðartakmörkunum. Farið verður í endurskoðun lífeyristökualdurs í samráði við aðila.
- Fæðingarorlof lengist úr 9 mánuðum í 10 í byrjun árs 2020 og lengist í 12 mánuði í byrjun árs 2021.
- Tekið verður á kennitöluflakki samkvæmt tillögum ASÍ og SA og heimildir til refsinga auknar. Keðjuábyrgð um opinber innkaup verður lögfest. Fórnarlömb vinnumansals og nauðungarvinnu á aukna aðstoð og vernd.
- Verðtryggð jafngreiðslulán til lengri tíma en 25 ára verða bönnuð frá 2020 nema með ákveðnum skilyrðum. Frá byrjun árs 2020 verður lágmarkstími verðtryggðra neytendalána lengdur úr 5 í 10 ár. Spornað verður við sjálfvirkum vísitöluhækkunum vöru, þjónustu og skammtímasamninga.
Félagsmenn hafa síðasta orðið
Atkvæðagreiðsla um samningana er rafræn, allar upplýsingar eru á á heimasíðu Einingar-Iðju, www.ein.is. Þar er sömuleiðis hægt að lesa samningana og annað ítarefni.
Atkvæðagreiðslan hefst þann 12. apríl og lýkur klukkan 16:00 þann 23. apríl.
Eining-Iðja boðar til almennra félagsfunda á öllu félagssvæðinu, þar sem farið verður yfir öll atriði samninganna.
Mikilvægt er að félagsmenn kynni sér samningana eins vel og kostur er og taki þátt í atkvæðagreiðslunni.
Eining-Iðja undirbjó kröfugerðina með markvissum og faglegum hætti. Síðasta skrefið er að taka þátt í atkvæðagreiðslunni, aðeins með þeim hætti geta félagsmenn sagt sitt álit á samningunum.
Félagsmenn hafa síðasta orðið í þessum efnum.
Stöndum saman og tökum þátt í atkvæðagreiðslunni.
-Höfundur er formaður Einingar-Iðju og Starfsgreinasambands Íslands