Togaranum Víði EA lagt og fyrirhugað að leggja Árbak EA

"Þetta eru sorgarfréttir, ég satt að segja ber kíðboga fyrir haustinu og óttast framhaldið," segir Konráð Alfreðsson formaður Sjómannafélags Eyjafjaðar. Samherji hefur hætt rekstri frystitogarans Víðis EA og þá berast fregnir af því að Brim hyggist leggja togaranum Árbaki EA innan tíðar.   

Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri Samherja vildi ekki ræða við Vikudag um þessi mál, en hann sagði í samtali við RÚV,  að þetta væri nauðsynleg aðgerð til að bregðast við kvótaskerðingu, en fyrirtækið hyggst fjölga í flota sínum á næsta fiskveiðiári.

Konráð Alfreðsson segir að í áhöfn Víðis auk afleysingamanna séu yfir 30 sjómenn og að líkindum á milli 15 og 17 á Árbak, þannig að hátt í 50 sjómenn missi vinnuna í kjölfar þess að skipunum verði lagt.  "Þetta snertir fjölmargar fjölskyldur, líklega um 160 manns í allt þannig að þetta er gríðarlegt áfall," segir Konráð.  Hann segir tíðindin þó ekki að öllu leyti koma á óvart, "og það er sjálfsagt bara tímaspursmál hvenær til dæmis Kaldbak verði lagt," segir hann.  Umhverfið sé með þeim hætti nú á tímum kvótaniðurskurðar og nýrrar tækni við veiðar og vinnslu að það sé sjómönnum langt í frá hagstætt.  Nú er mikið um að í landi sé unnið úr frystum fiski, hann þíddur upp þegar í land er komið.  "Það er þróun í þessum efnum sem öðrum og við henni er ekki hægt að sporna," segir Konráð.

Hann segir að uppsagnir félagsmanna í Sjómannafélagi Eyjafjarðar sé áfall, sjómönnum fækki ár frá ári og staðan nú í ár sé alls ekki góð,  "ég sé ekki fyrir mér hvað þessir menn eiga að fara að gera, staðan á atvinnumarkaði er ekki með besta móti um þessar mundir, þannig að þetta eru í alla staði mjög slæm tíðindi."  Hann segist hafa miklar áhyggjur af stöðu útgerðar í Eyjafirði almennt og nefnir sem dæmi að á fyrrum stórútgerðarstaðnum Akureyri sjáist vart skip nú orðið.  "Þau eru nánast alveg horfin og það má segja að það séu engin skip gerð út héðan lengur."

Nýjast