Níu af tíu þingmönnum í Norðausturkjördæmi og úr öllum flokkum hafa lagt fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um þyrlubjörgunarsveit á Akureyri. Fyrsti flutningsmaður er Birkir Jón Jónsson. Þar kemur fram að Alþingi álykti
að fela ríkisstjórninni að tryggja að Landhelgisgæsla Íslands haldi úti björgunarþyrlu frá Akureyri. Í greinargerð með
tillögunni er bent á að á íslenskum fiskimiðum séu veður válynd og þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslunnar er mikilvæg
fyrir öryggi sjófarenda. Mörg stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins séu á Norður- og Austurlandi og mikil útgerð er á
svæðinu.
"Þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslunnar er þó einungis staðsett á suðvesturhorni landsins og því búa sjófarendur um
norðan- og austanvert landið við minna öryggi en aðrir vegna þess hve fjarlæg þyrlubjörgunarsveitin er. Þó að tillaga þessi
sé flutt af hópi þingmanna Norðausturkjördæmis ber alls ekki að líta svo á að hún snúist um byggða- eða
atvinnumál, heldur er hér fyrst og fremst um öryggismál að ræða sem brýnt er að leyst verði úr hið fyrsta. Margt bendir til að
skipaumferð á norðurslóðum aukist til muna á komandi árum í tengslum við minnkandi hafís á siglingaleiðinni um
Norður-Íshafsleiðina. Einnig má benda á að miðstöð sjúkraflugs á Íslandi er á Akureyri auk þess sem
Sjúkraflutningaskóli Íslands er á Akureyri. Faglega séð ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að byggja upp
þyrlubjörgunarsveit á Akureyri. Jafnframt má nefna að þyrlur Landhelgisgæslunnar gegna sívaxandi hlutverki við björgun á landi, t.d.
þegar flytja þarf slasað fólk, m.a. frá hálendinu til byggða og undir læknishendur," segir ennfremur í greinargerðinni.
Flutningsmenn auk Birkis Jóns eru; Kristján Þór Júlíusson, Valgerður Sverrisdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Arnbjörg
Sveinsdóttir, Einar Már Sigurðarson, Þuríður Backman, Ólöf Nordal og Höskuldur Þórhallsson.