Þröstur Eysteinsson skipaður í embætti skógræktarstjóra

Þröstur Eysteinsson, sem starfaði um árabil á Húsavík og á þangað ættir að rekja -  og trjágróður al…
Þröstur Eysteinsson, sem starfaði um árabil á Húsavík og á þangað ættir að rekja - og trjágróður aldrei fjarri.

 

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Þröst Eysteinsson í embætti skógræktarstjóra til fimm ára. Þröstur hefur frá árinu 2003 starfað sem sviðsstjóri Þjóðskóganna hjá Skógrækt ríkisins.

Þröstur var annar tveggja umsækjenda sem hæfnisnefnd mat hæfastan til að gegna embættinu. Hann lauk doktorsprófi í skógarauðlindum frá háskólanum í Maine í Bandaríkjunum og meistaragráðu í skógfræði frá sama skóla. Áður en hann tók við stöðu sviðsstjóra Þjóðskóganna starfaði hann sem fagmálastjóri Skógræktar ríkisins og þar á undan sem sérfræðingur hjá rannsóknarstöð sömu stofnunar sem og héraðsfulltrúi Landgræðslu ríkisins á Húsavík,  þar sem hann starfaði einnig við kennslu og að umhverfismálum á vegum bæjarins og frjálsara samtaka.

Þá hefur Þröstur skrifað fjölda ritrýndra fræðigreina um skógrækt og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á sviði skógræktar.

Þröstur er skipaður í embætti skógræktarstjóra frá 1. janúar næstkomandi og er honum m.a. falið að fylgja eftir nýlegum tillögum starfshóps um sameiningu skógræktarstarfs ríkisins í eina stofnun.

Þröstur er kvæntur Sherry Curl og eiga þau tvö uppkomin börn. JS

Nýjast