Þrjár umsóknir um stöðu skólameistara í VMA og tvær um Framhaldsskólann á Húsavík

Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættin til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi …
Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættin til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar. Mynd á vef Stjórnarráðsins

Þrjár umsóknir bárust um stöðu skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri og  tvær um stöðu skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík. Þriðji framhaldsskólinn á Norðurlandi, Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki fékk flestar umsóknir, en um lausa stöðu skólameistara við þann skóla bárust 6 umsóknir. Umsóknir um þessar þrjár stöðu skólameistara við norðlenska framhaldsskóla urðu því í allt ellefu talsins.

Umsækjendur um embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík:

  • Halldór Jón Gíslason
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir

Umsækjendur um embætti skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri:

  • Benedikt Barðason
  • Daníel Freyr Jónsson
  • Harpa Jörundardóttir

Umsækjendur um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra:

  • Árni Gunnarsson
  • Halla María Þórðardóttir
  • Íris Helma Ómarsdóttir
  • Kristján Bjarni Halldórsson
  • Selma Barðdal Reynisdóttir
  • Vera Sólveig Ólafsdóttir
  •  

Embættin voru auglýst laus til umsóknar hinn 28. apríl sl. með umsóknarfresti til og með 14. maí. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættin til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum. Skipað verður í embættin frá 1. ágúst næstkomandi.

Nýjast