Þrettán smit af Covid-19 veirunni eru staðfest á Norðurlandi eystra og 412 eru í sóttkví. Tvö smit hafa því bæst við á síðasta sólarhring. Á landinu öllu er smitin orðin 802 og alls 9.889 í sóttkví.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt nýja lýðheilsustefnu sveitarfélagsins. Stefnan miðar að því að íbúar njóti góðrar heilsu og vellíðunar á öllum æviskeiðum.
Allt mitt líf er á misskilningi byggt. Ég slæ þessu fram því ég er heyrnarskert. Stundum er ekki heill þráður í tilsvörum mínum. Þeir sem þekkja mig vita það. Þeir sem þekkja mig ekki geta lent í vandræðum þegar þeir fara að spjalla við mig. Ég svara kannski einhverju út í bláinn eða þreyti þá með viðstöðulausu tali...þá þarf ég ekki að misskilja það sem þeir segja.
Ástin dró Þóru Soffíu Gylfadóttur til Raufarhafnar og þar hefur hún fundið efnivið í bæði handverk og sögur. Með verkefninu Hannað við heimskautsbaug vill hún skapa muni sem tengjast staðnum og með heimildarmyndinni Arfi sem lifir áfram, varðveita minningar fólks frá síldarárunum.
NorðurHjálp hefur það sem af er ári veitt einstaklingum og fjölskyldum í neyð bónuskort til matarinnkaupa fyrir yfir 20 milljónir króna. Þá hefur fjöldi fólks fengið aðstoð í formi húsgagna, fatnaðar og matvæla úr matarhorni NorðurHjálpar.
Tæknifræðideild HA/HR fékk á dögunum handverkfæri að gjöf frá Verkfærasölunni. Verkfærin munu nýtast í nýrri verklegri aðstöðu deildarinnar við Háskólann á Akureyri og styðja við verklega kennslu og verkefnavinnu nemenda.
Rannsóknamiðstöð ferðamála við Háskólann á Akureyri hefur lokið tveggja ára Erasmus+ verkefninu UPLIFT sem miðar að því að efla notkun gagnvirkrar tækni og frásagna í ferðaþjónustu.
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti á fundi sínum 26. september að setja á laggirnar nýtt nám í Kennslu íslensku sem annars máls við Kennaradeild. Námið svarar vaxandi þörf fyrir sérhæfingu kennara í fjöltyngdu skólasamfélagi.
Brúin fjölskyldusetur, samstarfsverkefni 11 sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, hóf formlega starfsemi í vor. Markmið Brúarinnar er að einfalda leið barna og fjölskyldna í gegnum þjónustukerfið með því að tengja saman þá þjónustu sem þau þurfa á að halda.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar hefur samþykkt að fyrirkomulag rjúpnaveiði á Þeistareykjum verði óbreytt frá því sem verið hefur frá árinu 2021.
Veiði verður áfram heimil á ákveðnum veiðidögum gegn gjaldi og verða veiðileyfi seld í gegnum vefsíðuna Hlunnindi.is.
Óheimilt verður að stunda rjúpnaveiði á svæðinu án leyfis.