Þorsteinn Kári á plötu vikunnar á Rás 2

Platan Hvörf með Þorsteini Kára sem kom út 9. júní hjá sjálfstæðu tónlistarútgáfunni og listakollektífinu MBS er plata vikunnar á Rás 2.

Hvörf er djúpt og persónulegt verk sem fjallar um umbreytingar í lífi listamannsins. Hún samanstendur af ellefu lögum með fjölbreyttum tónlistarblæbrigðum þar sem greina má rokk, raftónlist og indí með sterkri áherslu á hljóðgervla. Verkið má líta á sem eins konar dagbókarbrot þar sem innri heimur Þorsteins Kára birtist í tónlistinni

Um sköpunarferlið

Platan Hvörf varð til á erfiðum tímamótum í lífi Þorsteins Kára, þegar eiginkona hans greindist með krabbamein árið 2022. Upphaflega hafði hann aðeins hug á að semja nokkur lög, en ferlið þróaðist á óvæntan hátt og varð að heilli breiðskífu sem spannar um klukkustund í spilun. Sköpunin reyndist honum mikilvæg leið til að vinna úr aðstæðum og viðhalda andlegu jafnvægi á þessum krefjandi tíma. Lögin urðu til undir mismunandi kringumstæðum, sum hver einstaklega óhefðbundnar—líkt og lagið Valkyrja, sem hann samdi á sjúkrahóteli. Útkoman er ellefu laga plata sem ber merki um djúpa tilfinningatjáningu og persónulega innsýn í innri heim listamannsins.

Þorsteinn Kári tók upp bróðurpart hljóðfæraleiksins á plötunni en trommurnar voru teknar upp í Berlín þar sem Jón Haukur Unnarsson og Nirmalya Banerjee unnu að rytmískum grunni verksins. Með Þorsteini koma fram á plötunni: Ingi Jóhann Friðjónsson á bassa, Jón Haukur Unnarsson á trommur og slagverk, Auður Eva Jónsdóttir á selló, Wolfgang Frosti Sahr á saxófón og Egill Örn Eiríksson á gítar

Þorsteinn Kári er fjölhæfur hljóðfæraleikari og áhrifamikill tónlistarmaður úr Djúpadal í Eyjafirði. Hann hefur verið virkur í tónlistarsenu Norðurlands í nær tvo áratugi og er stofnmeðlimur listakollektífsins og útgáfufélagsins MBS. Þar hefur hann gefið út fimm plötur – tvær undir eigin nafni, tvær sem hluti af Brák og eina með sveitinni Buxnaskjónum – auk þátttöku í fjölda annarra verkefna sem framleiðandi og hljóðfæraleikari. Þorsteinn hefur einnig unnið við hljóðvinnslu á 15 af alls 22 útgáfum MBS og er óaðskiljanlegur hluti samsteypunnar.

Platan er væntanleg á veglegum tvöföldum rauðum marmara vínyl sem kemur til landsins á næstu vikum. Útgáfan er pressuð af RPM Records í Danmörku og plötukápuna hannaði Þórður Indriði Björnsson. Hvörf með Þorsteini Kára er 22. útgáfa listakollektífsins og útgáfufélagsins MBS Skífur.

Nýjast