Mikill fjöldi var saman kominn á Ráðhústorginu á Akureyri klukkan 18. í dag til að krefjast þess að ríkisstjórn Íslands fari frá. Boðað hafði verið til mótmælanna í Facebook-hópi undir nafninu „Ríkisstjórnin hverfi frá”. Mótmælendur létu vel í sér heyra og margir höfðu tekið með sér skilti og rauð spjöld sem þeir lyftu í gríð og erg.
Jón Þór Sigurðsson er einn þeirra sem tók til máls á mótmælafundinum. Dagskráin.is náði tali af honum: „Mér er gríðarlega ofboðið og eiginlega fyrir svo löngu,“ segir hann rámur og er greinilega heitt í hamsi. „Nú er tíminn, nú er lag. Nú fáum við annan séns til að breyta rétt. Þótt það sé gríðarleg ergja ráðandi, þá skynja ég samt mikla von í fólki. Það er mómentið sem við erum að leita að, við viljum skilja reiðina eftir og biturðina. Það eru svo margir sem vilja byggja upp nýtt samfélag með okkur, sérstaklega ungt fólk sem er bara komið gjörsamlega á þann stað að það getur ekki meira.
Hann vill að boðað verði strax til kosninga, „en við viljum líka nýtt fyrirkomulag, nýja stjórnarskrá. Þjóðin er búin að samþykkja nýja stjórnarskrá, hún er til. Valdstjórnin núna gerir allt til að vefjast með hana í þinginu eins lengi og hægt er. Hún setur okkur hömlur en vilji okkar er alveg sýnilegur, hann sést í nýju stjórnarskránni. Það var þverskurður af þjóðfélaginu sem setti hana saman, það var langt ferli sem þar fór í gang, mikil vinna lögð í þetta,“ segir hann. Jón Þór er alveg skýr um það hver staða ríkisstjórnarinnar er í hans huga: „Þeir eru búnir að moka sína gröf, nú er bara að taka í gikkinn."
Það mátti skynja mikla reiði meðal fólks undir mótmælunum, fólk sem blaðamaður ræddi við var bæði gáttað og dofið. Hrönn Magnúsdóttir var ein þeirra sem blaðamaður ræddi við:
„Mér finnst forsætisráðherra hafa sýnt fullkomið siðleysi, hann er bara búinn að missa þjóðina með því að fara ekki eftir þeim leikreglum sem aðrir þurfa að fara eftir“