Við erum svolítið merkileg þjóð, eigum það til að fá dellu fyrir hinum ólíklegustu hlutum. Ein slík sem hefur gripið okkur er að kaupa gúrkur og nota þær í allt og ekki neitt liggur mér við að segja. Svo rammt kveður að þessu ,,æði“ að borið hefur á skorti í verslunum á þessari áður nokkuð rólegu söluvöru.
Vefurinn sem finnur stundum fyrir annars konar ,,gúrkutíð“vill auðvitað fljóta með í umræðu dagsins og setti sig í samband við mann sem kann að gera gott úr öllu sem hann snertir á matarkyns.
Friðrik V meistarakokk þekkja lesendur og hann kemur hér með hugmyndir handa okkur sem þekkjum gúrkur vart undir öðrum kringumstæðum en í salati, eða ofan á brauð, og í einstaka tilfellum í glasi með göróttum drykk og svörtum pipar ómuldum.
Maestro láttu vaða!
Tzatziki
1 agúrka
2 dl grísk jógúrt
2 söxuð hvítlauksrif
2 msk saxað ferskt dill
3 svört piparkorn
4 kóreanderfræ
salt
Skerið agúrkuna í 5mm þykkar sneiðar, stingið kjarnann úr og saltið létt.
Hrærið jógúrtið út með saxaða hvítlauknum og dillinu. Maukið fræin í morteli og blandið saman við jógúrtblönduna. Skolið saltið af agúrkunum og blandið saman við jógúrtið.
Raðið agúrkunum upp í turn og setjið á diskinn
Tzatziki
Agúrkuborðar með chili og sesam
1 agúrka skorin í þunna borða í mandolini
1/3 grænt chili skorið í þunnar sneiðar
1/3 rautt chili skorið í þunnar sneiðar
1/3 gult chili skorið í þunnar sneiðar
1 stk Vorlaukur skorinn í þunnar sneiðar
2 msk Sæt chili sósa
1 msk Soya sósa
1 tsk Sesamolía
1 msk Sesamfræ ristuð
Svartur pipar og flögu salt
2 msk af hrísgrjónaediki
1 msk Worcestershire sósa.
Öllu blandað saman í skál sem hægt er að loka, geymt í henni í kæli í 2-3 tíma áður en borið er fram.
Agúrkuborðar með chili og sesam
Sumarlegur gúrkudrykkur
1 agúrka
Safi úr 1 sítrónu
½ grænt epli flysjað steinhreinsað og skorið í bita
1 msk góð ólífuolía
Smá salt og pipar
Allt maukað saman í góðum mixara þangað til að þetta lítur út eins og góður Smoothie, hella í fallegt glas og skreyta með agúrku og sítrónu.
Sumarlegur gúrkudrykkur