Sigrún Steinarsdóttir Ellertsen forsvarskona Matargjafa á Akureyri birtir i dag á Fbvegg hennar ákall til fólks um stuðning við jólasöfnun Matargjafa . Sigrún gaf góðfúslegt samþykkir fyrir birtingu hennar skrifa:.
Matargjafir Akureyri og nágrenni var stofnað árið 2014 af Sunnu Ósk Jakobsdóttur og Sigrúnu Steinarsdóttur með það að markmiði að styðja einstaklinga og fjölskyldur á Norðurlandi sem standa höllum fæti. Enn í dag er Sigrún með Matargjafir ásamt fleiri sjálfboðaliðum.
Nú eru 13. jólin í starfi Matargjafa fram undan, en á undanförnum tólf árum hafa hundruð barna, einstaklinga og fjölskyldna fengið stuðning frá Matargjöfum til að geta átt gleðilegri og áhyggjuminni jól.
Fyrstu tíu árin fór starfsemin að mestu fram frá heimili stofnenda en undanfarin þrjú ár hafa Matargjafir haft aðstöðu hjá KFUM á Akureyri án endurgjalds. Félagið greiðir því hvorki húsaleigu, hita né rafmagn vegna aðstöðunnar. Starfið er unnið af sjálfboðaliðum og í dag starfa átta sjálfboðaliðar með Matargjöfum.
Markmið okkar er að veita skjóta og virðingarfulla aðstoð sem tekur mið af þörfum hvers heimilis. Aðstoðin felst meðal annars í gjafakortum og inneign í matvöruverslanir, matargjöfum og öðrum nauðsynjum, skógjöfum og jólagjöfum fyrir börn,. Þá hafa hárgreiðslustofur á Akureyri lagt okkur lið með því að bjóða börnum ókeypis klippingar fyrir jólin.
Vaxandi þörf fyrir matargjafir og stuðning fyrir jólin
Þörfin fyrir slíka aðstoð er mikil. Ný rannsókn á fátækt barna á Íslandi sýnir að árið 2024 bjuggu 12,6% barna á heimilum undir lágtekjumörkum, eða um 10.500 börn. Bak við þessar tölur eru börn og fjölskyldur þar sem lítið svigrúm er eftir þegar búið er að greiða húsnæði, reikninga og aðrar nauðsynjar. Þegar jólin nálgast verður álagið enn meira.
Við hjá Matargjöfum sjáum þessa þróun með eigin augum á hverjum einasta degi og sérstaklega um hátíðar. Um jólin 2024 aðstoðuðum við rúmlega 200 einstaklinga og fjölskyldur en um jólin 2025 hafði fjöldinn aukist í 276. Allt bendir til þess að þörfin verði áfram mikil fyrir jólin 2026 því miður.
Virðing, hlýja og samstaða í þágu barna og fjölskyldna
Á hverju ári berast okkur ábendingar um einstaklinga og fjölskyldur sem eiga í miklum fjárhagslegum erfiðleikum en myndu sjálf aldrei biðja um hjálp. Við reynum að ná til þeirra af nærgætni og tryggja að öll aðstoð sé veitt með virðingu að leiðarljósi. Oft forum við með gjafakort, mat, skógjafir, jólagjafir og fl. til þeirra án þess þó að nefna hvaðan hjálpin berst.
Fyrir fólkið sem leitar til okkar snýst þetta ekki um íburðarmikil jól heldur að geta haldið jól. Aðstoðin getur þýtt að nægur matur sé til yfir hátíðarnar, að hægt sé að kaupa nauðsynlega skó eða fatnað á barn og að jólagjöf verði undir trénu. Hún getur ekki síður létt miklum áhyggjum af foreldrum sem vilja, eins og allir aðrir, geta skapað börnum sínum gleðileg jól.
Stuðningur samfélagsins tryggir fleiri gleðileg jól
Til þess að geta mætt þessari vaxandi þörf leitum við nú til fyrirtækja og einstaklinga um stuðning við 13. jólasöfnun Matargjafa. Hægt er að leggja okkur lið með fjárframlögum, gjafakortum, matvælum,skógjöfum, jólagjöfum eða öðrum sem nýtast þeim sem til okkar leita.
Í rúm tólf ár höfum við séð hvað samstaða samfélagsins getur gert. Með stuðningi ykkar getum við haldið áfram að rétta fólki hjálparhönd og stuðlað að því að fleiri börn og fjölskyldur á Norðurlandi geti átt gleðileg og friðsæl jól.
Með kærri þökk fyrir stuðninginn,
F.h. Matargjafa Akureyri og nágrenni
Sigrún Steinarsdóttir Ellertsen
Reikningur: 1187-05-250899
Kennitala: 670117-0300
Netfang: matargjof@gmail.com