Tæplega 30 milljónum króna úthlutað til menningarstarfs

Menningarráð Eyþings úthlutaði  í dag 28 milljónum króna til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings við hátíðlega athöfn í Menningarmiðstöð Þingeyinga - Safnahúsinu á Húsavík. Þetta er í fjórða sinn sem úthlutað er styrkjum samkvæmt samstarfssamningi menntamálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og sveitarfélaga í Eyþing um menningarmál. Ávörp fluttu Björn Ingimarsson formaður Menningarráðs Eyþings og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.   

Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhver hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðausturlandi eða dragi fram menningaleg sérkenni svæðisins.   Áherslur við úthlutun þessa árs eru meðal annars verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna, verkefni sem hvetja til samvinnu ólíkra þjóðarbrota í samstarfi við Íslendinga, verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista og verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista. Nánar verður fjallað um úthlutunina fljótlega.

Nýjast