Aðalfundur RARIK ohf. 2008 verður haldinn á Akureyri föstudaginn 11. apríl nk. Tæplega 200 milljóna króna tap varð á rekstri RARIK á
síðasta ári. Samkvæmt rekstrarreikningi samstæðunnar voru rekstrartekjur félagsins 7.436 milljónir króna á árinu 2007.
Rekstrartekjur RARIK frá 1. ágúst til ársloka 2006 námu 2.838 milljónum króna. Tap RARIK ohf. frá stofnun 1. ágúst til
ársloka 2006 nam 381 milljónum króna. Áætlanir fyrir yfirstandandi ár gera ráð fyrir hagnaði af rekstri félagsins en breyttar ytri
aðstæður geta haft veruleg áhrif á afkomu ársins.
Samkvæmt efnahagsreikningi 31. desember 2007 námu heildareignir 26.442 milljónum. Heildarskuldir voru 11.706 milljónir og eigið fé 14.737 milljónir.
Eiginfjárhlutfall er 55,7 % í árslok 2007. Í ársbyrjun var þetta hlutfall 61.6%. Ársreikningur RARIK ohf er gerður í samræmi
við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og er þetta í fyrsta sinn sem
félagið gerir reikningsskil sín með þeim hætti, segir í fréttatilkynningu. Þann 1. ágúst 2006 var stofnað
hlutafélag um rekstur Rafmagnsveitna ríkisins. Við þau tímamót voru eignir Rafmagnsveitnanna sem ganga áttu inn í hið nýja
hlutafélag endurmetnar með tilliti til þess að ársreikningur fyrir 2007 yrði gerður í samræmi við alþjóðlega staðla.
Heildaráhrif breyttra reglna eru því óverulegar eða 0,4 milljónir króna til lækkunar á eigin fé í ársbyrjun og
hagnað ársins 2006. Samstæðureikningur fyrirtækisins tekur, auk móðurfélagsins til dótturfélagsins Orkusölunnar ehf.
Félagið gerði á árinu samning um kaup á 28% af hlutafé Orkusölunnar ehf. Fyrir átti félagið 36% í félaginu.
Rekstur Orkusölunnar ehf varð hluti af RARIK-samstæðunni frá og með 1. janúar 2007. Samhliða því var hlutafé Orkusölunnar ehf
aukið með framlagningu hlutafjár í formi virkjana. Við það jókst eignarhlutur RARIK ohf í Orkusölunni ehf í 99,8% (1.915,6
milljónir). Eignarhlutur í Sunnlenskri orku er 90% (72 milljónir), en Eignarhaldsfélag Hveragerðis og Ölfuss á 10%. Eignarhlutur RARIK í
öðrum félögum er samtals rúmar 1.276,4 milljónir kr. Þar af er hlutur í Landsneti hf kr 1.122,5 milljónir sem er 22,51%
eignarhlutur