Börn sýrlensku flóttamannana sem komu til Akureyrar skömmu eftir áramót eru byrjuð í skóla. Átta börn hófu grunnskólagöngu, þrjú í Brekkuskóla og fimm í Oddeyrarskóla. Þá eru tvö börn á leikskóla og þrír unglingar eru að hefja nám í VMA.
Að sögn skólastjóra Brekkuskóla og Oddeyrarskóla hefur gengið vel fyrir börnin að aðlagast skólalífinu.
-Vikudagur, 10. mars