Sýningin “Með tvær hendur tómar” í Gallerí+ á Akureyri

Anna Sigríður Sigurjónsdóttir, myndhöggvari, opnar myndlistarsýningu í Galleri+, Brekkugötu 35 á Akureyri, laugardaginn 31. janúar kl. 16.00 og stendur hún til 16 febrúar. Sýningin ber yfirskriftina "Með tvær hendur tómar" og er innsetning í þremur rýmum gallerísins.  

Opnunartími Gallerí+ er um helgar frá kl. 14-17.00 og aðra daga eftir samkomulagi við eigendurna, Joris og Pálínu, í síma 462 7818. Anna Sigríður útskrifaðist úr MHÍ 1985 og fór í framhaldsnám í myndmótunardeild AKI listaakademíunnar í Enschede í Hollandi til 1989. Anna Sigríður hefur verið starfandi listamaður síðan og sýnt víða.

Nýjast