Sykursýkismóttaka HSN styður fólk við breytingar í daglegu lífi

Ester Ósk Hreinsdóttir, fagstjóri heilsueflandi þjónustu hjá HSN og verkefnastjóri sykursýkismóttöku HSN á Akureyri, segir að sykursýki af tegund 2 greinist nú mun oftar hjá yngra fólki en áður, auk þess sem algengi hennar hefur aukist verulega í nær öllum aldurshópum á síðustu áratugum.

Alþjóðlegur dagur sykursýki er haldinn 14. nóvember ár hvert til vekja athygli á sjúkdómnum og þeim fjölda fólks sem lifir með honum. Yfirskrift dagsins í ár, „snemmbærar aðgerðir gegn sykursýki“ undirstrikar mikilvægi tímanlegrar greiningar, þess að draga úr hættu á sykursýki af tegund 2 og að tryggja aðgengi að viðeigandi meðferð.*

Aukningu í greiningu á sykursýki 2 má meðal annars rekja til aukinnar tíðni offitu, minni hreyfingu og/eða meiri kyrrsetu. Langvinnir sjúkdómar og efnaskiptavandamál eru nú stærsti hluti daglegs klíniks starfs á heilsugæslu en 23.0000 Íslendingar með sykursýki af tegund 2. Í sykursýkismóttöku HSN fær fólk einstaklingsmiðaða fræðslu, stuðning við að ná stjórn á sjúkdómnum í daglegu lífi, með t.d. breyttu mataræði, ráðgjöf varðandi svefn og streitu og að finna hreyfingu við hæfi.

Stuðningur við breytingar í daglegu lífi

Á starfsstöðvum HSN á Norðurlandi starfa þverfagleg teymi lækna, hjúkrunarfræðinga, næringarfræðinga, heilbrigðisgagnafræðinga og sjúkraþjálfara saman að þjónustu við fólk með sykursýki og aðra lífsstílstengda sjúkdóma þar sem lögð er áhersla á heildræna nálgun í meðferð og eftirfylgni. Oft þarf að taka á fleiri en einum vanda, svo sem háum blóðþrýstingi eða offitu.

„Hluti af meðferðinni hjá okkur eru svokölluð lífsstílssamtöl við skjólstæðinga sem fela í sér að þeim er leiðbeint við að gera breytingar á lífstíl sínum, bæði þegar kemur að mataræði og hreyfingu. Sjúkraþjálfarar gefa þá út hreyfiseðla sem leiðbeina um hreyfingu sem hentar hverjum og einum,“ segir Ester.

Teymin deila reynslu og þekkingu

„Faghópurinn starfar saman þvert á svæði hjá HSN og fundar reglulega en svo eru svæðisbundnu teymin okkar mjög öflug. Við erum dugleg að deila reynslu og þekkingu okkar á milli,“ segir Ester.

Ester sótti á dögunum ráðstefnu evrópskra samtaka hjúkrunarfræðinga á sviði sykursýki (Foundation of European Nurses in Diabetes - FEND) í Mílanó. Með henni fóru Hildur Ósk Rúnarsdóttir, Arna Björg Sævarsdóttir og Matthildur Birgisdóttir, hjúkrunarfræðingar hjá HSN á Akureyri og Blönduósi.

„Það er mjög gott að fara og leita endurmenntunar, sjá hvað er að gerast erlendis og hvernig við stöndum í samanburði. Heilt yfir metum við það sem svo að við séum á nokkuð góðum stað, við erum að ná árangri í meðferðum og erum ágætlega sett hvað varðar tól og tæki fyrir meðferðir, bæði fyrir sykursýki 2 og fleira,“ segir Ester. Meðal tækjakosts má nefna augbotnamyndavél sem skimar fyrir breytingum í augnbotnum og nýtt líkamsgreiningartæki sem var gjöf frá Lions og gerir kleift að meta líkamssamsetningu einstaklinga.

 

* https://unric.org/is/althjodadagur-sykursyki-hnattraen-krisa-i-forvornum-greiningu-og-adgengi/

 

 

 

Nýjast