Bréf Guðmundar er svohljóðandi: "Nú eru liðnir tveir mánuðir síðan ég tók við starfi sveitarstjóra og það
gefur tilefni til að senda ykkur línu. Þessir tveir mánuðir hafa gengið vel, allir taka mér vel og vilja hjálpa mér við að komast inn
í málefni sveitarinnar Ég óska eftir því við ykkur að þið leyfið mér að heyra af málum sem ykkur þykja ekki
í lagi eða betur mættu fara. Ekki get ég fylgst með öllu og ekki heyri ég það sem þið segið við eldhúsborðið eða
í kaffistofunni. Hringið endilega í mig eða sendið mér tölvupóst, ég lofa að hlusta á alla þó ég geti ekki
orðið við öllum ykkar óskum. Einu lofa ég þó; ef hægt er að verða við erindinu eða bóninni þá skal ég
sjá til þess að málið fái jákvæðan endi.
Ég hef ekið mikið um sveitina síðan ég tók við starfinu og séð marga snyrtilega staði. En ég hef líka rekist á margt
sem betur mætti fara. Eyjafjarðarsveit er landbúnaðarsvæði að stærstum hluta og umgengni ætti að vera hér til fyrirmyndar. Nú bið
ég ykkur ágætu sveitungar að athuga hvort þið sjáið það sem ég sá og við tökum höndum saman og bætum
það sem bæta þarf.
Ég er framkvæmdastjóri sveitarinnar og vinn samkvæmt stefnumótun sveitarstjórnar, mér ber að haga málum þannig að allir séu
jafnir gagnvart stjórnsýslu sveitarinnar og allir sitji við sama borð. Ég er framkvæmdamaður og fer ekki löngu leiðina við
ákvarðanatöku, ég er ekki hræddur við að reka mig á og tel það geta gefið tækifæri til betri verka.
Ég legg mikla áherslu á að starfsmenn sveitarinnar og kjörnir fulltrúar skilji á milli starfa sinna fyrir sveitina og einkahagsmuna. Þetta getur
verið vandasamt í smáum samfélögum en er afar mikilvægt, ég bið því alla hlutaðeigandi að huga vel að þessum
þáttum. Að lokum þakka ég góðar móttökur og hlakka til samstarfs á komandi árum."