Sumarstarfsdagur í Laufási á sunnudaginn

Í Gamla bænum Laufási við Eyjafjörð verður hægt að fylgjast með fólki að við ýmsa iðju sem tíðkaðist í gamla daga sunnudaginn 5. júlí milli 13:30 og 17:00. Hvernig verður smjör til? Hvernig fór fólk að því í gamla daga að gera skyr? Hvernig fór fólk að við heyskap fyrir tíð heyvinnuvéla?  

Dagskráin hefst í kirkjunni kl 13:30 þar sem sr Bolli Pétur Bollason stýrir fjölskyldusamveru. Að henni lokinni verður fólk að störfum í Gamla bænum. Unnið verður úr undirstöðu matarræðis Íslendinga fyrr á öldum, mjólkinni. Kynnt verður undir hlóðum og bakaðar gómsætar lummur. Gestum og gangandi verður boðið að smakka á ýmsu góðgæti sem unnið verður í gamla bænum s.s. nýgerðri smjörklípu á heimabökuðu rúgbrauði og nýgerðu skyri.

Á hlaðinu verður heypskapur í fullum gangi og danshópurinn Vefarinn stígur dans eftir að honum lýkur. Þátttakendur í starfsdeginum í Laufási eru félagar úr Laufáshópnum auk fjölda annara sjálfboðaliða. Veitingasala er í Gamla presthúsinu, en þar er hráefni úr héraði í hávegum haft. Opnunartími í Laufási er 9-18 alla daga.

Nýjast