Hljómsveitin Strom & Wasser heldur tónleika á Græna hattinum annað kvöld, föstudag.
Bandið er skipað þýskum hljóðfæraleikum, auk forsprakkans Heinz Ratz en einnig syngja með sveitinni þau Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson. Þá blæs Haukur Gröndal í klarinett og saxafón.
Samdægurs mun Heinz Ratz halda fyrirlestur sem hann kallar „Hin nýja ásýnd Evrópu.“ Fyrirlesturinn er öllum opinn og fer fram í Háskólanum á Akureyri. Í tilkynningu um sveitina segir:
„Heinz er baráttumaður fyrir auknum mannréttindum og lífsrými fyrir þá sem eru án griðlands. Nýverið hefur þýska háskólasamfélagið heiðrað framlag hans í þágu flóttamanna sem hann hefur virkjað með músíkþátttöku og með því ljáð þeim rödd í þýsku samfélagi. Í fyrstu var þetta í óþökk stjórnarinnar en nú hafa augu hennar opnast fyrir jákvæðu framlagi Heinz Ratz og stjórnvöld hafa boðist til að ganga til liðs og styðja verkefnið. Músík Strom & Wasser er skemmtileg blanda af kaparett/rapp/funk/folk þar sem tónlistararfur Evrópu er skoðaður – kirkjutóntegundir, tataraskalar, dýraköll, tónlist austurkirkjunnar, balkanskir dansar, Fato og áfram mætti telja. Sungið er á gelísku/ísl/þýsku og ensku. Framlagið nefnist ReykjavíkProject og auk Strom & Wasser eru Egill Ólafsson og Ragnheiður Gröndal meðhöfundar tónlistar og texta. Nýverið kom út tveggja platna albúm sveitarinnar sem verður til sölu á tónleikunum gegn vægu verði. Útgáfan er ein af tíu væntanlegum á vegum S&W sem hið virta útgáfufélag í Traumton í Berlín gefur út.“
Tónleikarnir á Græna hattinum hefjast kl. 21:00 á og er aðgangseyrir kr. 3500 en kr. 3000 í forsölu.