Stórtónleikar í Menntaskólanum á Akureyri

Á morgun, þriðjudaginn 29. apríl, verða haldnir tónleikar í Kvos Menntaskólans á Akureyri. Tónleikarnir eru liður í lífsleikninámi nokkurra útskriftarnemenda skólans og eru haldnir til styrktar verkefni Barnaheilla; Bætum framtíð barna. Barnaheill styðja menntun barna í stríðshrjáðum löndum s.s. Afganistan, Kambódíu og Úganda. Fram koma hin ástsæla söngkona Helena Eyjólfs, Óskar Pétursson stórsöngvari, Eyþór Ingi sigurvegari í Bandinu hans Bubba og Magni söngvari í hljómsveitinni Á móti sól. Auk þeirra koma fram hin efnilegu Helga Maggý söngkona og hljómsveitin Flashy Hannes. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 og aðgangseyrir er 1500 krónur, 1000 fyrir skólafólk. Veitingar eru seldar í hléi gegn vægu verði.

Nýjast