08. september, 2009 - 19:55
Þór/KA vann 9-0 stórsigur á lánlausu liði Keflavíkur er liðin mættust í kvöld á Sparisjóðsvellinum í
Pepsi- deild kvenna í knattspyrnu. Þær Mateja Zver og Rakel Hönnudóttir sáu um að skora öll mörk Þórs/KA í kvöld
en Mateja skoraði fimm mörk og Rakel fjögur. Eftir leikinn er Þór/KA komið í þriðja sæti deildarinnar með 33 stig en
Keflavík situr á botninum án stiga.