Stór steinn þeyttist í húsvegg

Stór steinn, 2,6 kg að þyngd, þeyttist af miklu afli í húsvegg á raðhúsi við Melateig á dögunum og var höggið svo mikið að það kvarnaðist upp úr steinsteyptum veggnum og niðurfallsrenna frá þakinu, sem steininn lenti einnig á, lagðist saman. Steinninn hafnaði á veggnum og rennunni í um 120 cm hæð frá jörðu og hefði hann komið á húsið um einum metra norðar, hefði hann farið í gegnum gluggann á svefnherbergi þeirra Bjarna Jónassonar og Svövu Gunnarsdóttur. "Þessi steinn hefði drepið hvaða naut sem er og ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum  hefði manneskja orðið fyrir honum," sagði Bjarni Jónasson, íbúi við Melateig á Akureyri.  Bjarni taldi líklegast að steinninn hefði verið á  milli hjóla á vörubíl og losnað með fyrrgreindum afleiðingum, eða þá að steinninn hefði hreinlega spýst undan slíkum bíl. Kona Bjarna, Svava Gunnarsdóttir, fann steininn undir þvottasnúrunum og taldi hann í fyrstu að honum hefði verið hent inn á lóðina frá götunni. Þegar Bjarni var svo sjálfur að slá blettinn nokkru síðar, sá hann ummerkin á húsveggnum og varð honum skiljanlega mjög brugðið.

Íbúar í þessu raðhúsi og fleirum við Melateig, hafa ekki átt sjö dagana sæla frá því að þeir fluttu inn í hús sín. Þeir hafa þurft að búa við mikinn hávaða frá stórum vörubílum, dráttarvélum og fleiri tækjum, sem aka um Mýrarveg, m.a. til og frá Naustahverfi en gatan liggur rétt við húsin í Melateig. "Það þýðir ekkert að ræða þessi mál við bæjaryfirvöld og ég get alveg eins reynt að tala við húsvegginn. Þannig hafa viðbrögðin verið á þeim bænum. Það lifnaði aðeins yfir þessari umræðu fyrir síðustu kosningar og þá lofuðu m.a. Kristján Þór (Júlíusson) og Hermann Jón (Tómasson) að það yrði tekið á þessu máli. Það hefur hins vegar ekkert gerst," sagði Bjarni.

Sigríður Sigurðardóttir, sem býr í næsta húsi við Bjarna sagði ástandið gjörsamlega óþolandi. Hún væri ýmsu von eftir að hafa búið í Þórunnarstræti en ástandið þarna væri miklu verra. Hún þarf m.a. að láta aldraðan og sjúkan eiginmann sinn sofa í geymslunni, því hann getur ekki sofið í svefnhergi þeirra hjóna fyrir hávaða frá götunni. "Hér er hvínandi hávaði allan sólarhringinn, frá alls kyns ökutækjum og það er ekkert gamanmál að vera sífellt að hringja í lögregluna," sagði Sigríður. Hún sagði að núverandi bæjarstjóri Sigrún Björk Jakobsdóttir hefði tjáð sér að loka ætti Mýrarveginum á þessum kafla þegar Miðhúsabrautin hefur verið lögð. Sigríður vonast til að það gangi eftir. Bjarni sagði að umferð bíla yfir 12 tonn væri bönnuð um Mýrarveginn frá kl. 22 á kvöldin til 08 að morgni virka daga, svo og um helgar.  Hann sagði að menn gerðu lítið með þetta, þeir væru byrjaðir keyra þarna um kl. 07.30 og jafnvel á laugardögum.

Nýjast