Stjórn Íþróttafélagsins Þórs hefur sent bréf til Hermanns Jóns Tómassonar formanns bæjarráðs Akureyrar og
óskað eftir því að framkvæmdir vegna uppbyggingar frjálsíþrótta- og knattspyrnuaðstöðu á aðalsvæði
félagsins verði stöðvaðar nú þegar. Á fundi stjórnar Þórs með stjórn UFA staðfestist mikill ágreiningur um
staðsetningu og uppröðun á stökksvæðum framan við stúkuna, sem að mati stjórnar Þórs skapar allt of mikla fjarlægð
áhorfenda við knattspyrnuvöllinn, sem nú er samkvæmt áætlunum 24,29 metrar. Þessi vegalengd sem hér er nefnd á sér enga
hliðstæðu hérlendis.
Er það ósk stjórnar Íþróttafélagsins Þórs að bæjaryfirvöld leiti allra leiða til að minnka þessa
fjarlægð. Í ljósi þessarar uppbyggingar sem hér er hafin og er mjög metnaðarfull vill stjórn Íþróttafélagsins
Þórs trúa því að sú uppbygging sem snýr að knattspyrnu verði með hagsmuni og framtíð knattspyrnunnar í huga ekki
síður en frjálsíþróttafólks.