Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri lýsa yfir vantrausti

Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri,  aðal- og varabæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akureyri harma þá atburðarás sem átt hefur sér stað síðustu daga og vikur. Í ljósi aðstæðna er trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar brostinn og getur hún því ekki starfað áfram undir forystu núverandi forsætisráðherra.

Uppfært: 

Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins á Akureyri hafa skorað á Sigmund Davíð að segja af sér, áskorunin birtist rétt í þessu á Facebook síðu Guðmundar Baldvins Guðmundssonar, odd­vita Fram­sókn­ar­manna í bæj­ar­stjórn Ak­ur­eyr­ar.

Und­ir áskor­un­ina rita einnig fyrr­ver­andi odd­vit­ar flokks­ins, Jó­hann­es Gunn­ar Bjarna­son og Jakob Björns­son, og Björn Snæ­björns­son, formaður verka­lýðsfé­lags­ins Ein­ing­ar-Iðju og formaður Starfs­greina­sam­bands Íslands.

Áskor­un­in í heild:

Áskor­un

Vegna þess trúnaðarbrests sem við telj­um að skap­ast hafi milli for­sæt­is­ráðherra og flokks­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins sem og lands­manna allra, skor­um við á Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son að segja sig frá störf­um for­sæt­is­ráðherra án frek­ari tafa.

Guðmund­ur Bald­vin Guðmunds­son bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins á Ak­ur­eyri,

Ingi­björg Ólöf Isak­sen bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins á Ak­ur­eyri,

Siguróli M. Sig­urðsson vara­bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins á Ak­ur­eyri,

Tryggvi Már Ingvars­son vara­bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins á Ak­ur­eyri

Óskar Ingi Sig­urðsson vara­formaður um­hverf­is­nefnd­ar Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar

Jó­hann­es Gunn­ar Bjarna­son

Jakob Björns­son

Björn Snæ­björns­son

Viðar Valdi­mars­son

Nýjast