Sterkustu skákmenn landsins etja kappi á Akureyri

Íslandsmót skákfélaga verður haldið í Brekkuskóla á morgun föstudag og á laugardag. Keppendur á mótinu eru tæplega 400 og er það er hið fjölmennasta sem háð hefur verið á Akureyri. Mótið er haldið norðan heiða í tilefni af 90 ára afmæli Skákfélags Akureyrar, sem var fyrir skömmu.    

Um er að ræða sveitakeppni og er teflt í fjórum deildum. Í fyrstu deild tefla 8 sveitir og fer hver viðureign fram á 8 borðum. Allir sterkustu skákmenn landsins verða á meðal keppenda og má þar nefna Jóhann Hjartarson, núverandi Íslandsmeistara, Hannes Hlífar Stefánsson og Héðinn Steingrímsson. Auk þess hafa sveitirnar erlenda meistara í sínum röðum. Gera má ráð fyrir að um 15 stórmeistarar sitji að tafli í Brekkuskóla meðan mótið fer fram, þ.m.t. skákmenn frá Grikklandi, Frakklandi, Búlgaríu,Tékklandi, Hollandi, Litháen, Úkraínu Svíþjóð og Danmörku.
Mótið hefst klukkan 20.00 í Brekkuskóla á morgun og mun Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri á Akureyri setja mótið með því að leika fyrsta leikinn í viðureign heimamanna í Skákfélagi Akureyrar og Taflfélags Bolungarvíkur, sem teflir fram sterkustu sveitinni á mótinu.

Nýjast