Sterkt alþjóðlegt unglingamót haldið á Akureyri

Mynd/Golfklúbbur Akureyrar
Mynd/Golfklúbbur Akureyrar

Viðburðarstofa Norðurlands í samstarfi við Golfklúbb Akureyrar hafa komist að samkomulagi við A.R Events um að fá mót inn á Global Junior Golf Tour mótaröðina sem A.R Events standa fyrir. Global Junior Golf Tour er mótaröð sem haldin er á heimsvísu fyrir krakka á aldrinum 12-18 ára. Mótaröðin verður á Akureyri í sumar og mun fara fram á Jaðri næstu þrjú árin.

Mótið verður haldið í tengslum við Icelandic Summer Games sem haldnir verða á Akureyri um verslunarmannahelgina. GJG Tour er sterk mótaröð þar sem krakkar víðs vegar að úr heiminum fá tækifæri til að keppa sín á milli í golfmótum sem eru sett upp líkt og um atvinnumannamót væri að ræða og fá þannig innsýn inn í þannig umgjörð.

Nýjast