Steingrímur J. endurkjörinn formaður VG með lófataki

Steingrímur J. Sigfússon var endurkjörinn formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á landsfundi flokksins í morgun. Hann var kjörinn með lófataki en engin mótframboð komu fram á fundinum. Katrín Jakobsdóttir var endurkjörin varaformaður og Sóley Tómasdóttir var endurkjörin ritari. Nýr gjaldkeri var kjörin Hildur Traustadóttir en Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Nýjast