Stefnir í að farþegar um Akureyrarflugvöll verði ríflega 200 þúsund í ár

Allt stefnir í að farþegar um Akureyrarflugvelli verði ríflega 200 þúsund talsins nú í ár, en að sögn Sigurðar Hermannssonar umdæmisstjóra Flugstoða er það svipaður fjöldi og fór um flugvöllinn árið 2007.Á liðnu ári fóru um 221 þúsund farþegar um Akureyrarvöll, um 200 þúsund í innanlandsflugi og um 21 þúsund í millilandaflugi eða öðru flugi.  

"Það bendir allt til þess að farþegafjöldinn verði svipaður í ár, fyrstu mánuðir þessa árs voru nokkru betri en sömu mánuðir í fyrra, fleiri fóru um völlinn, en nú síðastliðna þrjá mánuði hefur lítillega dregið úr farþegafjöldanum.  Þeir eru slakari en sömu mánuðir í fyrra. Við vitum svo auðvitað ekkert hver þróunin verður," segir Sigurður.  Áhrif efnahagskreppunnar virðist enn sem komið er ekki hafa sett sitt mark á fólk sem ferðast með áætlunarflugi innanlands í miklum mæli og hefur Sigurður ákveðnar væntingar um að t.d. höfuðborgarbúar muni í auknum mæli leggja leið sína til Akureyrar eftir áramót í stað þess að ferðast til útlanda.  "Ég geri ráð fyrir að fólk muni sækja hingað á skíði og fleira eftir áramótin," segir hann.

Sigurður segir það vissulega mjög gott að ná sambærilegri tölu farþega á Akureyrarflugvelli nú í ár, því liðið ár, 2007 hafi verið mjög gott.  Farþegar á ferð innanlands eru álíka margir og í fyrra en millilandafarþegarnir örlítið færri, m.a. vegna þess að í sumar þurfti að senda farþega í millilandaflugi tvívegis til Egilsstaða vegna framkvæmda við flugbrautina á Akureyri.  Þá féll einnig niður ferð sem fara átti í beinu flugi til Lundúna nú í haust.

Nýjast