Stefna og Bændasamtökin endurnýja samstarfssamning

Stefna ehf og Bændasamtök Íslands (BÍ) hafa endurnýjað samsstarfssamning sinn um hugbúnaðarþróun fyrir miðlæg kerfi BÍ. Stefna hefur verið bakhjarl tölvudeildar BÍ í tæp tvö ár og hefur samstarfið gengið mjög vel.  Ánægja er innan BÍ með vinnu forritara Stefnu að vefrænum skýrsluhaldskerfum bænda sem unnin eru í nánu samstarfi við forritara tölvudeildar BÍ enda tveir forritarar tölvudeildarinnar staðsettir í húsnæði Stefnu á Akureyri, segir í fréttatilkynningu. Meðal kerfa sem unnin hafa verið í samstarfinu er nýtt miðlægt tölvukerfi AFURÐ, sem hefur tekið við af gömlu tölvukerfi í AS/400. AFURÐ heldur utan um fjölþættar upplýsingar frá afurðastöðvum um framleiðslu og það reiknar margvíslegar stuðningsgreiðslur til bænda og afurðastöðva. Nú er unnið að smíði á nýju skýrsluhaldskerfi í nautgriparækt (http://www.huppa.is/) sem kemur til með að leysa "gömlu Huppu" af hólmi. Kerfið var nýverið sett í prófun hjá völdum hópi kúabænda og er stefnt að því að bjóða öllum kúabændum sem taka þátt í skýrsluhaldi aðgang að kerfinu á næstu mánuðum. Önnur veflæg tölvukerfi BÍ vinna með þessu nýja tölvukerfi svo sem MARK (http://www.bufe.is/), Fjárvís (http://www.fjarvis.is/) og AFURÐ.  Kerfin sem Stefna vinnur að eru skrifað í PHP5 forritunarmálinu og nota Zend Framework. Undir þessu keyrir síðan Oracle gagnagrunnur í nautgriparækt sem hefur verið í þróun í tölvudeild BÍ síðustu árin. Einnig er notast við jQuery, Xajax og Thickbox.  Hjá Stefnu starfa átta manns og þar af fimm tölvunarfræðingar að forritun.

Nýjast