Starfshópur um nauðsynlega innviðauppbyggingu raforkukerfis var skipaður í síðustu viku. Greint var frá þessu á mbl.is. Hópnum er ætlað að fara yfir og forgangsraða þeim aðgerðum sem ráðast ber í til að koma í veg fyrir að viðlíka rafmagnsleysi, og varað hefur víða á landsbyggðinni frá því að óveðrið skall á, geti komið fyrir á ný.