Til stendur að fjölga bílastæðum fyrir fatlaða í miðbæ Akureyrar og stækka öll stæðin sem fyrir eru.
Bílastæði fyrir fatlaða í miðbænum og víða annars staðar hafa lengi verið vandamál. Hafa hreyfihamlaðir bent á að þau séu of þröng auk þess sem mörg þeirra eru illa staðsett og ekki í hæð við gönguleiðir. Í lok júní í fyrra greindi Vikudagur frá slæmu aðgengi fyrir fatlaða í miðbæ Akureyrar.
Haft var eftir viðmælanda í blaðinu að bærinn væri allur, steyptur með köntum, múrsteinum og tröppum. Auk þess var bent á að bílastæði fyrir fatlaða væru of lítil. Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags.
-þev