SS Byggir fær lóð við Undirhlíð undir tvö fjölbýlishús

Skipulagsnefnd Akureyrar samþykkti með fjórum atkvæðum á fundi sínum í vikunni, erindi frá Sigurði Sigurðarsyni fyrir hönd SS Byggis ehf, þar sem hann sækir um lóð við Undirhlíð 1 - 3 fyrir byggingu tveggja fjölbýlishúsa.  

Áður en framkvæmdir á lóð hefjast skulu gerðar ráðstafanir um markvisst eftirlit á grunnvatnsstöðu svæðisins í samráði við verkfræðistofuna Mannvit og skipulagsdeild. Jóhannes Árnason greiddi atkvæði gegn veitingu lóðarinnar.

Nýjast