SS Byggir ehf. varð 30 ára 16. mars sl. en þetta mun vera elsta byggingarfyrirtækið á Norðurlandi. Í tilefni tímamótanna bauð
fyrirtækið starfsmönnum sínum í tertukaffi í vikunni. Sigurður Sigurðsson, eigandi og stofnandi fyrirtækisins, hélt stutta ræðu og
sagði að verkefnastaða fyrirtækisins væri góð. Næsta verkefni eftir að framkvæmdum lýkur við verslunarmiðstöðina
Glerártorg er bygging fjölbýlishúss við Brekatún í Naustahverfi. Þá er beðið eftir leyfi frá bænum vegna byggingar
raðhúsa og fjölbýlishúsa við Undirhlíð. Sigurður nefndi einnig að í undirbúningi væru ýmis smærri verkefni.
Njáll Harðarson, verkstjóri hjá fyrirtækinu, afhenti Sigurði glæsilega ljósmynd af Akureyri og blóm fyrir hönd starfsmanna. Njáll
sagði í leiðinni að þetta væri stór áfangi fyrir fyrirtækið ef litið er til þess að þetta er eina
byggingarfyrirtækið á Norðurlandi sem náð hefur svo háum aldri. Njáll sagði að ástæðan væri sennilega sú að
þetta er eina fyrirtækið sem þorir að ráðast í stórar einkaframkvæmdir og vísaði í, máli sínu til
stuðnings, byggingu fjölbýlishúss við Skálateig.
Fyrirtækið mun halda upp á 30 ára afmælið sitt 16. maí nk. en þá verður öllum starfsmönnum boðið í 5 daga
utanlandsferð. Flogið verður beint frá Akureyri til Barcelona á Spáni og þaðan í bæinn Salou. Árshátíð
fyrirtækisins verður haldin í Barcelona. Þetta kemur fram á vefsíðu fyrirtækisins.