Sorphirðu verði fyrst um sinn áfram sinnt af starfsmönnum bæjarins

Bæjarráð Akureyrar telur heppilegast að sorphirðu verði fyrst um sinn áfram sinnt af starfsmönnum bæjarins sem búa yfir mikilli reynslu og þekkingu á verkefninu. Flokkun, fyrirtæki sveitarfélaganna á Eyjafjarðarsvæðinu, verði að öðru leyti falið að hafa umsjón með framkvæmd málaflokksins fyrir hönd Akureyrarbæjar.
 

Stefnumótun í sorpmálum var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs í morgun, þar sem
deildarstjóri framkvæmdadeildar, Helgi Már Pálsson, fór yfir stöðu mála.
Bæjarráð lýsti  ánægju sinni með þá vinnu sem unnin hefur verið til að undirbúa breytt fyrirkomulag sorphirðu á Akureyri og þær áætlanir sem uppi eru um framtíðarskipulag hennar. Ljóst er að í hönd fara tímar mikilla breytinga hvað varðar sorphirðu í bænum. Bæjarráð telur því heppilegast að sorphirðu verði fyrst um sinn áfram sinnt af starfsmönnum Akureyrarbæjar og hefur falið umhverfisnefnd og framkvæmdadeild að vinna áfram að málinu á þessum forsendum.

Nýjast