Grímseyingar fagna sumarsólstöðum og bjóða gestum og gangandi að taka þátt í gleðinni sem hófst í kvöld, föstudagskvöld með hafnarstemningu þar sem Feðgabandið spilaði. Sumarsólstöðuhátíðin fór mjög vel af stað. Fyrr í dag opnaði sýning á Grímseyjarljósmyndum Friðþjófs Helgasonar og hagyrðingakvöld var í félagsheimilinu þar sem Álftagerðisbræður komu fram.
Á morgun, laugardag, verður mótttaka við höfnina þegar ferjan Sæfari leggst að en ferjan fer um morguninn frá Dalvík og aftur til baka um miðnætti. Sýningar verða á sjávarfangi og í Fuglasafni Gylfa og fjölskyldu. Tónleikar verða síðan í Miðgarðakirkju með Guðnýju Guðmundsdóttur. Sjóstangveiði, bjargsig, gönguferðir með leiðsögn, sjávarréttir í boði við höfnina og fleira. Annað kvöld verður haldin Sælkeraveisla í Félagsheimilinu Múla þar sem landsliðskokkarnir Gunnar Karl og Sæbjörn Kristjánsson galdra fram ýmiskonar konfekt úr matakistum Grímseyinga. Kvöldið endar á dansleik þar sem tónlistarmaðurinn KK kemur fram.