Sólbakur tekinn fyrir meint fiskveiðibrot

Varðskipið Ægir stóð togarann Sólbak að meintum ólöglegum togveiðum á Vestfjarðamiðum í gær í hólfi þar sem áskilið er að hafa svokallaða smáfiskaskilju eða ákveðna lágmarskmöskvastærð. Fylgdi vvarðskipið Sólbaki til hafnar á Akureyri og komu þeir að bryggju snemma í morgun. Nú síðdegis er verð að yfirheyra og taka skýrslur af yfirmönnum togarans.  Það var um hádegi í gærsem varðskipið kom að skipinu og voru eftirlitsmenn sendir um borð í togarann til að kanna veiðarfæri og skipsbækur. 


Í ljós kom að Sólbakur var hvorki búinn svokallaðri smáfiskaskilju né hafði þá lágmarksmöskvastærð sem áskilin er á þessu svæði og meðalmöskvastærð trollpokans var undir áskilinni lágmarksstærð sé ekki notuð smáfiskaskilja. 
Handfærabáturinn var staðinn að meintum ólöglegum handfæraveiðum innan bannsvæðis suður af Látrabjargi. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-Líf kom að bátnum og sást greinilega að báturinn hafði veiðarfæri sín í sjó.

Nýjast