Þorbjörn segir að nú séu teikn á lofti um að verið sé að stela kútum í samskonar tilgangi og biðlar hann til þeirra sem eru með gaskúta úti við að ganga tryggilega frá þeim (læsa þeim við trygga pósta). "Ef þú lesandi góður verður vitni af því að verið sé að stela gaskútum í þínu nágrenni eða vitir af stöðum þar sem einstaklingar eru að sniffa gas vinsamlega hafðu strax samband við lögreglu. Það er afar brýnt að við sameinumst í að miðla upplýsingum um þessi mál til að reyna að tryggja betur öryggi hvors annars," segir Þorbjörn ennfremur.