Hafnarstjóri hefur lagt til við Framkvæmda- og hafnarnefnd Norðurþings, að slippurinn í Naustafjöru á Húsavík verði auglýstur til sölu. Með í sölunni fylgdu lóðarréttindi og byggingarréttur eins og nánar er skilgeint í deiliskipulagi Norðurhafnar. Tilboðsgjöfum verði gert að skila inn tímasettri áætlun um uppbyggingu á svæðinu og nýtingu slippsins.
Nefndin fjallaði um þetta erindi og lagði síðan til við bæjarstjórn að slippurinn verði auglýstur til sölu og verði salan skilyrt áframhaldandi nýtingu hans við viðhald báta og skipa. JS