Vaðlaheiðargöng eru orðin 4.983,5 m eða rúmlega 69% af heildarlengd. Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, segir að stefnt sé að því að sprengja í Fnjóskadal á ný á næstu vikum en ekkert hefur verið sprengt þeim megin síðan mikið vatn herjaði á verktakann. Eins og áætlanir standa nú segir Valgeir að stefnt sé að því að slá í gegn öðrum hvorum megin við áramótin 2016-2017. Eftir gegnumslag tekur að jafnaði 1214 mánuði að fullklára verkið. Stefnt hefur verið að opnun ganganna í lok ársins 2017.
-Vikudagur, 31. mars