Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar lagði fram bókun á síðasta sveitarstjórnarfundi þar sem skorað er á þingmenn landsins að endurskoða afnám tolla á ýmis matvæla. Eins og fram hefur komið hafa íslensk stjórnvöld og Evrópusambandið (ESB) gert milliríkjasamning um viðskipti með búvörur og gagnkvæma niðurfellingu toll. Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar segja þetta koma illa við landbúnað og matvælaframleiðslu á svæðinu.
Í bókun segir m.a: Við skorum á þingmenn að taka málið upp og að þessir samningar verði ekki staðfestir af Alþingi nú, en þess í stað einbeiti menn sér að því strax á haustþingi að undirbúa nýja samninga um starfsskilyrði landbúnaðarins til lengri tíma, en núverandi samningar (búvörusamningur) renna út í lok næsta árs. Tollamál eru og hafa verið hluti af þeim samningum og því rökrétt að ákvarðanir um breytingar á þeim verði teknar samhliða gerð nýrra samninga við greinina til lengri tíma. Bent er á að landbúnaður og matvælaframleiðsla séu ein meginstoð byggðar við Eyjafjörð og nágrenni.