Skora á heilbrigðisráðherra að fjölga hjúkrunarrýmum á Hvammi

Dvalarheimilið Hvammur, Kristján Þór Magnússon. Samsett mynd.
Dvalarheimilið Hvammur, Kristján Þór Magnússon. Samsett mynd.

Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings óskaði í gær eftir því að sveitarstjórn Norðurþings skori á heilbrigðisráðherra að fjölga hjúkrunarrýmum í Dvalarheimilinu Hvammi um sex rými á næstu þremur árum. Tillaga sveitarstjóra var samþykkt samhljóða.

Nauðsynleg uppbygging nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík er nú í farvatninu og er sigurtillaga hönnunarsamkeppni um húsið nú í lokahönnun. Stefnt er að útboði verksins á næsta ári og að framkvæmdir hefjist síðla árs 2021. Verkáætlun gerir ráð fyrir að nýtt heimili verði tilbúið til notkunar á fyrri hluta árs 2024.

Hlutfallslegur fjöldi hjúkrunarrýma á hverja 1000 aldraða meiri í Norðurþingi en á landsvísu en það kemur fram í upplýsingum frá framkvæmdastjórn Dvalarheimilisins Hvamms sem lagðar voru fram á fundi sveitarstjórnar.

Með tilkomu hins nýja hjúkrunarheimilis er ráðgert að hjúkrunarrýmum fjölgi um sex. Fram kemur í þingskjali 0876 að staðan er sú í dag að biðtími eftir hjúkrunarrými er hvað lengstur á Húsavík samanborið við aðra staði á landinu; á HSN 694 dagar og 182 dagar á Hvammi. Á biðlista í lok síðasta árs voru á HSN fjórir einstaklingar og í Hvammi  fimm. Í dag eru 10 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunarrými á HSN og 12 í Hvammi.

„Í ljósi þröngrar stöðu rekstrarins á dvalarheimilinu undanfarin misseri, m.a. vegna aukinna útgjalda sem Covid-19 faraldurinnn hefur haft í för með sér, er hér með skorað á heilbrigðisráðherra að flýta heimild Dvalarheimilisins Hvamms til að auka við hjúkrunarrými heimilisins svo þau verði öll komin í rekstur þegar nýtt hjúkrunarheimili verður tekið í gagnið. Að tvö ný hjúkrunarrými komist í rekstur nú um næstu áramót, tvö önnur um áramótin 2021-2022 og síðustu tvö áramótin 2022-2023. Yrði þetta mikilvægur liður í að bæta þjónustu við eldri aldurshópana á svæðinu sem og að bæta rekstrargrunn heimilisins,“ segir í fundargerð sveitarstjórnar.

Nýjast