Fram kom á fundi skólanefndar, að haft hefur verið samband við Heilsugæslustöðina og munu starfsmenn hennar verða skólunum innan handar við gerð viðbragðsáætlana. Nefndin samþykkti jafnframt að fela fræðslustjóra að fylgja því eftir að allir skólar hafi gert sér viðbragðsáætlun fyrir 1. september nk.