Í tilefni útkomu bókar sinnar Mótun framtíðar Hugmyndir-Skipulag-Hönnun mun Trausti Valsson, prófessor í skipulagsfræði við HÍ halda erindi um skipulagsmál í Lionssalnum að Skipagötu 14 á Akureyri í dag, fimmtudaginn 15. október, milli klukkan 16 og 18. Að opnunarerindi Trausta loknu verða umræður um erindið hans, skipulagsmál við Eyjafjörð og annað sem fundarmenn vilja ræða. Fundurinn er opinn öllum.
Trausti kemur með eftirfarandi bækur sínar á fundinn, og lætur þær ganga:
"Vegakerfið og ferðamálin" (2000), "Skipulag byggðar á Íslandi - Frá landnámi til líðandi stundar" (2002) og "Mótun framtíðar Hugmyndir-Skipulag-Hönnun" (2015)