Skiptir skóstærð máli þegar ráðið er í stöður hjá ríkinu?

Á undanförnum árum hafa iðulega risið deilur um að hve miklu leyti stjórnvöld geti sjálf ákveðið hvaða sjónarmið liggja til grundvallar ákvörðunum um val á milli umsækjenda um opinberar stöður. Á Jafnréttistorgi í Háskólanum á Akureyri á morgun þriðjudag kl. 12.00 verður fjallað um skipun í opinber embætti og stöðu jafnréttislaga.  

Í erindi sínu mun Ástráður Haraldsson hrl. ræða um álitaefni sem þessu tengjast í ljósi dómafordæma og álita Umboðsmanns Alþingis. Einnig verður sérstaklega vikið að hlutverki Jafnréttislaga og staða þeirra skoðuð í ljósi dómafordæma og álita Kærunefndar jafnréttismála.

Ástráður Haraldsson hrl. hefur starfað sem lögmaður í Reykjavík frá 1992. Hann var meðfram lögmennsku í hlutastarfi sem lögfræðingur Alþýðusambands Íslands frá 1995-2000 og hefur meðfram lögmennsku verið í hlutastarfi sem dósent við Háskólann á Bifröst frá 2002. Hann hefur sem fræðimaður einkum fjallað um vinnurétt og stjórnsýslurétt.

Nýjast