Skarpur kemur út í dag

Í Skarpi í dag eru myndir Halldóru Kristínar Bjarnadóttur af glæsilegri Árshátíð Framhaldsskólans á …
Í Skarpi í dag eru myndir Halldóru Kristínar Bjarnadóttur af glæsilegri Árshátíð Framhaldsskólans á Húsavík. M.a. þessi.

 

Skarpur kemur út í dag að venju, en dreifingu blaðsins kann að seinka dulítið af óviðráðanlegum ástæðum. Í blaðinu er m.a. fjallað um fyrirhugað upphaf sprenginga vegna jarðgangagerðar í Höfðanum á Húsavík. Fjallað er um góðbændurna og Landbúnaðarverðlaunahafana Laufeyju og Ása á Stóru-Tjörnum. Donald Prump kemur við sögu. Tónlistarhátíðinni Tónkvíslinni eru gerð skil. Sléttubönd. Fjallgöngur ungmenna í Öxarfirði. Kona mánaðarins er kynnt til sögunnar af Soroptimistum. Fjallað um flutning á veitingastaðnum Naustinu neðan bakka í Selið ofan bakka. Flugvallarmálinn eru til umræðu. Aron Bjarki og Pirlo skjóta upp kollinum.Þingeyingur í þaula er á sínum stað, að þessu sinni Karl Hannes Sigurðsson. Glæsilegir framhaldsskólanemar á Húsavík prýða síður blaðsins. Og sitthvað fleira er í Skarpi dagsins. JS

Nýjast